Professional Documents
Culture Documents
Sannleikurinn Á Gjörgæslu
Sannleikurinn Á Gjörgæslu
SANNLEIKANN ætti að forðast eins og heitan eldinn. Allt tal um SANNLEIKANN ber með
sér trúarlegan undirtón. Hann er yfirleitt eitthvað allt annað en vísindalegur.
SANNLEIKURINN er of stór hugmynd sem dó sama dag og Sameinuðu Þjóðirnar sáu
dagsins ljós. En samt er hann enn á ferli, þessi fylgja RAUNVERULEIKANS sem er
líka hverfandi fyrirbæri og má muna fífil sinn fegri. Vita þessi RAUNSÆIS-
SANNLEIKANS fífl ekki að við hér niðri á jörðinni sjáum enga leið færa upp úr
míkrókosmosinu.
Hillary Clinton er rökföst kona. Hún tekur af skarið og segir, Geimverur verða
ekki á dagskrá þingsins á meðan ég ræð einhverju. David Rockefeller kinkar kolli
til hennar og meinar það. Geimverur og ódýr orka, hættið nú alveg!
Nokkrar spurningar: Er Dr. Steven Greer að opna fyrir okkur villiglugga? Hvers
vegna þekkir hann svona mikið af háttsettu fólki? Er ódýr orka til og tilbúin
fyrir markaðssetningu? Og ef Greer er sjálfur á launaskrá útsendara myrkraaflanna,
er það þá ekki fyrirtaks snjallt að færa umræðuna um ódýra orku inn á
Sannleiksráðstefnur um geimverur til að gera þetta allt tortryggilegt? Svo stóra
spurninginn, ef Dr. Greer er eins hættulegur, og hann gefur sig út fyrir að vera,
stóru köllunum í viðskiptaheiminum, mönnum sem stjórna á bakvið tjöldin, og sem
okkur er líka sagt að ekkert geta staðið í vegi fyrir, hvers vegna er hann þá ekki
dauður? Hafa menn ekki týnt lífi sínu fyrir minna?
**Ég ætlaði líka að bölva C.G.Jung fyrir yfirskilvitlegt húmorsleysi. Það var hann
sem opnaði pandóruboxið og út flugu allir þessir fljúgandi furðuhlutir eins og það
væri umræðuefni fyrir allsgáða vísindamenn og það mest vegna þess hvað þetta
hugarflug var mikið komið frá miðaldra húsmæðrum með offituvandamál. Hvað voru
geimverurnar eiginlega að hugsa þegar þær nauðguðu þeim undir vísindalegu
yfirskyni? Þér verður aldrei framar boðið í kvöldverðarboð til mín, Jung litli,
sagði Sigmund, ef þú ætlar í alvörunni að fara tala opinberlega í einu um þetta
mömbójömbó og sálgreiningu. Hvar heldurðu að þetta endi?